Árangur verður ekki til vegna tilviljana
Ég hjálpa leiðtogum og teymum að ná meiri árangri með skýrum fókus, betri framkvæmd og sterkari menningu.
Ég hef unnið með fyrirtækjum og stjórnendum í mörg ár – bæði sem stjórnandi og sem coach. Ég hef séð hvað virkar í raun og hvað gerir ekki meira en að flækja hlutina.
Fyrirtæki skortir sjaldnast hæfni eða vilja.
Það sem vantar er skýr ábyrgð, eftirfylgni og kerfi sem tryggja að hlutirnir gerast – ekki bara að þeir séu ræddir.
Ég vinn með stjórnendum og teymum að því að einfalda flókna hluti, styrkja samskipti og byggja upp vinnulag sem skilar stöðugum árangri, viku eftir viku.
Markmiðið er einfalt:
Betri ákvarðanataka, sterkari teymi og árangur sem skilar sér í rekstrinum.
Ég kem inn í fyrirtæki og vinn náið með stjórnendum og teymum að raunverulegum verkefnum.
Bestur árangur næst þegar ég vinn með fyrirtækjum sem hluti af heildinni — ekki sem utanaðkomandi aðili sem „segir til“, heldur sem samstarfsaðili sem hjálpar til við að:
– einfalda flókin mál
– skýra fókus
– og byggja upp vinnulag sem heldur áfram að skila árangri eftir að verkefninu lýkur
Ef markmiðið er að ná meiri árangri með skýrari fókus og betri framkvæmd, þá byrjar það yfirleitt á einu samtali.
Ég vinn með fyrirtækjum sem vilja bæta árangur með því að styrkja það sem skiptir mestu máli – leiðtoga, teymi og hvernig vinnan er keyrð daglega.
Markmiðið er ekki að finna flóknar lausnir eða tímabundin verkefni, mun frekar að skýra fókus, einfalda vinnulag og framkvæma breytingar sem skilar raunverulegum áhrifum.
Leiðtogar
Ég vinn með stjórnendum að því að styrkja þeirra hlutverk og áhrif í reksturinn.
Fókusinn er á:
– skýrari ákvarðanatöku
– betri forgangsröðun
– aukið öryggi í leiðtogahlutverkinu
– hæfni til að leiða teymi sem skila árangri
Framkvæmd & vinnulag
Flest fyrirtæki vita hvað þau eiga að gera.
Það sem vantar er hvernig á að tryggja að það gerist.
Ég vinn með fyrirtækjum að því að:
– setja upp einfalt og skýrt vinnulag
– bæta eftirfylgni
– gera fundi markvissari og árangursdrifnari
– og tryggja að verkefni komist í framkvæmd, ekki bara umræðu
Nálgun
Þjónusta
Teymi
Sterk teymi verða ekki til af tilviljun.
Ég hjálpa teymum að:
– bæta samskipti og traust
– skýra ábyrgð og hlutverk
– vinna markvissar að sameiginlegum markmiðum
– skapa vinnulag þar sem allir vita hvað skiptir máli
Accountability & árangur
Árangur verður til þegar ábyrgð er skýr.
Við vinnum með:
– hver gerir hvað
– hvenær
– og hvernig er fylgt eftir
Þetta skapar umhverfi þar sem árangur verður
stöðugur, ekki tilviljunarkenndur.